Öryrkjarlúxusinn

Nefnd var að skila af sér skýrslu um stöðu og kjör öryrkja.

Nú hélt maður í sakleysi sínu að það þyrfti enga nefnd til að sjá hvíliku lúxuslífi maður lifir á 159 þúsund krónum á mánuði,og ekki hefur maður heyrt þess getið að blessað millistéttar fólkið í nefndinni hafi gert tilraun til þess að lifa á þeim tekjum. En það er vitaskuld mikill lúxus að vera öryrkji á íslandi, fyrir það fyrsta þá getur maður legið í leti frá morgni til kvölds og ríkið borgar manni laun, og auðvitað fær maður að borga 30 þúsund í skattamánuði. Auðvitað fer maður að pæða sig og klæða eins og allir aðrir hafa eitthvert húsnæði en auðvitað gefur auga leið að öryrkji þarf ekkert að vera að þvælast í bíó, á tónleika og hvað þá ferðast til útlanda slíkur óþarfi er aðeins fyrir þá heilbrigðu. Eitthvað var nefndinn góða að minnast á að hækka þyrfti bæturnar nema hvað ríkiskassinn er víst tómur, ef maður spyr sig hvort ekki megi að minnsta kosti til bráðabirgða létta sköttum af örorkubótum veita ýmsa afslætti t.d. á fargjöldum, bensíni, og jafnvel ýmsum nauðsynja vörum út á örorkukort og að sjálfsögðu einnig að reyna að grisja út þá sem bætur þyggja  manni biður í grunn að ekki séu allir svo voðalega miklur öryrkjar sem þyggja örorkubætur, þannig hefur maður heyrt af fólki gera sér upp þunglyndi til að fá bætur út á það full frískir menn hafa fengið örorkubætur útá það að vera nýkomnir úr áfengismeðferð og ýmis álýkadæmi má ef til vill finna. Ef slýk tilfelli væru hreinsuð burt yrði vafalaust meira til skiptana en fyrst og fremst þarf að breyta viðhorfa til öryrkja. Öryrkjar eru ekki samsöfn allskins letinga og fáranlinga, heldur eru þeir allskonar fólk eins og ég og þú.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband